S01E100
– Magnús Blöndahl er sálfræðingurinn minn. Hann hefur fylgt þættinum í anda í meira en ár og það var í gegnum hlustanda þáttarins sem ég fékk ábendingu um að senda honum línu og panta tíma. Það breytti mjög miklu. Hann las mig eins og opna bók, greindi kvíðann og hegðunina hjá mér niður í smáatriði og kom mér á brautina við að leysa úr málunum. Ég er allur annar en þó er ferlið ekki á enda og ég geng glaður til hans mánaðarlega. Magnús er afar fær í því sem hann gerir. Hann er vísindamaður fram í fingurgóma en missir þó ekki sjónar af hinu mannlega. Honum leiðist hálfkák og vill bæta geðheilsu fólks með staðfestum aðferðum og vinnubrögðum. Lengi vel vissi Magnús ekkert hvert hann ætlaði í lífinu, var ekkert endilega iðinn við nám og ákvað að lokum á tröppum háskólans að nema sálfræði. Greinin heltók hann síðan fastar eftir því sem árin liðu og nú er hann að leggja lokahönd á doktorsáfanga. Hann kennir við háskólana, sinnir fólki eins og mér og stundar rannsóknir. Magnús er venjulegur maður á aldri við mig og alls ekki hinn tvítklæddi og þurri sálrýnir sem við sjáum fyrir okkur dags daglega. Ég skulda Magnúsi margt og við þessi tímamót kom enginn til greina sem viðmælandi nema hann.
Gott spjall.
– Sjóvá býður upp á STVF.
Líf- og sjúkdómatryggingar létta svo sannarlega undir þegar lífið tekur óvænta stefnu. Það skiptir máli að tryggja sig fyrir mögulegum áföllum og það er bæði einfaldara og ódýrara að gera það þegar maður er ungur. www.sjova.is/einstaklingar/lif-og-heilsa/lif-og-sjukdomatrygging/
– Hljóðkirkjan býður upp á 3 þætti í viku. Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
#0099 Laddi
#0098 Jens Ólafsson
#0097 Katrín Jakobsdóttir
#0096 Rakel Björk Björnsdóttir
#0095 Aðalheiður Ámundadóttir
#0094 Karl Ágúst Úlfsson
#0093 Sandra Hlíf Ocares
#0092 Agnes Grímsdóttir [2022]
#0091 Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
#0090 Ævar Þór Benediktsson
#0089 Broddi Kristjánsson
#0088 Vigdís Jóhannsdóttir
#0087 Arnar Þór Gíslason
#0086 Esther Talía Casey
#0085 Sigríður Beinteinsdóttir
#0084 Jóhannes Haukur Jóhannesson
#0083 Aldís Amah Hamilton
#0082 Elíza Geirsdóttir Newman
#0081 Lára Sóley Jóhannsdóttir
Copyright © 2006-2022 Podbean.com