Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóra og hans betri helming, Ingibjörgu Ösp Stefánsdóttur.
Það eru fáir íslendingar sem geta státað sig af því að hafa verið leikhússtjóri þriggja stórra leikhúsa landsins og í ofanálag útvarpsstjóri og hvað þá að hafa tekið við sínu fyrsta leikhúsi aðeins 31 árs gamall, en eins og Magnús segir sjálfur kviknaði leiklistarbakterían snemma en hann stofnaði sitt fyrsta leikhús 9 ára gamall og var strax þá farinn að taka starfinu sem leikhússtjóri mjög alvarlega.
Ingibjörg er einnig viðriðin listaheiminn en hún er stjórnarformaður Hörpu ásamt því að vera forstöðumaður samkeppnishæfnissviðs Samtaka atvinnulífsins.
Magnús og Ingibjörg kynntust fyrst þegar Magnús var við störf á Akureyri en það var þó ekki fyrr en nokkru seinna sem þau byrja að stinga saman nefjum, Ingibjörg þá ennþá búsett á Akureyri en Magnús kominn til borgarinnar, nánar tiltekið í Borgarleikhúsið.
Upp frá því voru hlutirnir fljótir að gerast hjá þeim og eignuðust þau tvo stráka saman en fyrir átti Ingibjörg þrjú börn.
Þau segja sjáf að þau hafi líklegast haldið flugfélaginu á lofti þar sem þau bjuggu lengi á sitthvorum staðnum eða allt þar til þeirra yngsti sonur fæddist en má segja að þau hafi lent í allskonar ævintýrum út frá því þar á meðal alvöru “Home alone mómenti” og sendu ný til kominn tengdason í leikskólaútilegu með yngstu guttana.
Í þessum þætti fórum við um víðann völl og ræddum meðal annars lífið í listaheiminum, sameiningu fjölskyldunar, mikilvægi þess að skapa öðruvísi minningar, brauðtertukeppni ásamt fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Magnús fór þolinmóður með tengdamóður sinni yfir servéttusafnið hennar.
Blush.is - https://blush.is/
Bagel 'n' Co - https://https://www.bagelnco.is/
Dominos - https://www.dominos.is/
Promennt - https://www.promennt.is/is
Berjamó - https://berjamo.is/
#126 - Einar Lövdahl & Heiðdís Inga
#125 - Hildur Vala og Kjartan
#124 - Damir & Katrín
#123 - Þorbjörg Þorvalds og Silja Ýr
#122 - Ægir Þór & Heiðrún
#121 - Heiðar Austmann og Kolfinna
#120 - Katla Hreiðars & Haukur Unnar
#119 - Birgitta Líf & Enok
#118 - Erna Hrund & Jonni
#117 - Elísa Viðars & Rasmus Christiansen
#116 - Kristín Lea & Vigfús Þormar
#115 - María Thelma & Steinar Thors
#114 - Aldís Amah & Kolbeinn
#113 - Lalli Töframaður & Heiðrún
#112 - Hannes Óli & Aðalbjörg
#111 - Svandís Dóra & Sigtryggur
#110 - Gummi Tóta & Guðbjörg
#109 - Guðmundur Ingi & Heiða
#108 - Stefán John & Katrín
#107 - Þórdís Vals & Hermann Sigurðs
Create your
podcast in
minutes
It is Free
50 Tastes Of Gray
Dear Alice | Interior Design
Spider-Man Crawlspace Podcast
Gulliver’s Travels
The War of the Worlds
The Magnus Archives
War Nerd Radio — Subscriber Feed