Hlaðvarp um lífið, tilveruna, normin, ónormin, óöryggi, geðheilsu, mótandi minningar og allt hið ósagða í ofantöldum efnum. Trúnó er í umsjón Tómasar Valgeirssonar og Nínu Eck. Nína er Mastersnemi í félagsráðgjöf, IPS jafningjaþjálfari og teymisstjóri jafningja á Geðsviði LSH. Tómas er fjölmiðlamaður, græjukall og söngleikjanörd. Samtölin kunna að vera hljóðrituð. Vertu með í trúnóinu.

Episode List

Kerfið og kvíðinn

Jan 7th, 2024 12:37 AM

'Season tvö' af blaðvarpi Trúnós er hafið ásamt glænýju ári. Nína og Tómas snúa aftur í spjall eftir viðburðaríka fjarveru í lífi þeirra beggja. Nína skaust til Ástralíu og hefur nýlokið MA ritgerð sinni um rannsókn hennar á innleiðingu jafningjastuðnings í geðheilbrigðisþjónustu. Tómas hefur verið á fullu í nýrri vinnu og að hlaupa á milli kvikmyndasetta. Síðan voru víst einhver jól þarna á milli. Trúnó-teymið veltir fyrir sér umfjöllunarefni þessarar ritgerðar og hversdagslegan kvíðann í kringum hátíðirnar. Rætt er um listina að vera aleinn á aðfangadegi, æskutengingar við flugelda, staðalmyndir þunglyndis, kerfishindranir, ýmsa stressfaktora og ólíkar skilgreiningar á hvað 'bati' getur þýtt. Mögulega leynast þarna fáein hvöss 'teik' og eitthvað af erfiðum spurningum, að venju. Samtalið kann að hafa verið hljóðritað. Og skemmtilegt.

Hin hliðin á hatrinu

Oct 2nd, 2023 10:13 AM

Breen-istar, hatursorðræður, fordómar, þjóðarskömm, íslensk smábæjarhyggja, innlendir fréttamiðlar, prakkaralegir pólitíkusar og merku ættartengsl Nínu. Þetta ku vera hinn víði völlur sem þau Tómas kryfja á einlægum nótum. Hvössum líka. Vitaskuld. Innihald innslagsins að sinni er í persónulegri kantinum. Samtalið kann að hafa verið hljóðritað. Alveg óvart.

Hvílík Geðveiki™

Sep 18th, 2023 10:57 AM

Hvað þýðir það að vera 'geðveikur?' Hvað þýðir að vera 'eðlilegur?' Hver er munurinn á eðlilegum hugsanagangi og 'ofhugsara'? Nína fer yfir sín hjartans mál í gegnum lífsleið sína á meðan bæði þau Tómas mikla fyrir sér stærri spurningum lífsins. Samtalið var vissulega hljóðritað - Þáttastjórnendum óafvitandi.

Viðbjóðslega óþægilegar og persónulegar spurningar

Sep 11th, 2023 1:08 PM

Nína og Tómas kölluðu eftir alls konar ‘heimskulegum’ spurningum, frá hlustendum og víðar. Því persónulegri, því betra. Það er nefnilega ekkert til sem heitir heimskuleg spurning. En sérdeilis verða málin persónuleg. Samtalið gæti hafa verið hljóðritað. Hjálpi okkur.

Gerendameðvirkni.is

Sep 4th, 2023 9:03 AM

Mál gerenda og þolenda eru ávallt viðkvæm sama hvar þau eru rædd. Nína lýsir frá persónulegri upplifun sinni á meðan Tómas spyr hana spjörunum úr (afsakið orðbragðið) í tengslum við hitamál og skoðanir sem margir hafa gagnrýnt hana fyrir - og þá bara nokkuð nýverið. Það er eðli Trúnós að taka óþægilegri umræðurnar og þessi er svo sannarlega í þeim stíl. Glætan að þetta samtal hafi verið hljóðritað.

Get this podcast on your phone, Free

Create Your Podcast In Minutes

  • Full-featured podcast site
  • Unlimited storage and bandwidth
  • Comprehensive podcast stats
  • Distribute to Apple Podcasts, Spotify, and more
  • Make money with your podcast
Get Started
It is Free