Anna K. Liebel kom í heimsókn í hlaðvarp Opna háskólans í HR og þau Kristinn Hjálmarsson, þróunarstjóri við Opna háskólann, tóku tal saman. Umræðuefni dagsins var "Diversity, Equity and Inclusion", sem er hægt að útleggja sem "Fjölbreytni, jöfnuður og inngilding" (einnig hafa hugtökin þátttaka og samþætting án aðgreiningar verið notuð yfir inclusion), en Anna hefur verið að kenna samhljóða námskeið hjá Opna háskólanum og vinnur jafnframt að framleiðslu stafræns námskeiðs um sama efni með skólanum. Námskeiðið er ætlað fyrir stjórnendur og starfsfólk til að skerpa á þekkingu og byggja undir færni til að leiða fjölbreytt teymi á sálfræðilega öruggum vinnustöðum, sem leyfa starfsfólki að takast á við faglega krefjandi viðfangsefni.
Við val og hönnun námskeiða hjá Opna háskólanum er lögð áhersla á aukna færni í hverju viðfangsefni. Gestir hlaðvarpsins koma til að hugsa upphátt um tiltekna færniþætti, um strauma og stefnur í þróun starfa. Sífellt verða til ný hlutverk og störf eftir því sem samfélagið, tæknistig, umhverfi og rekstur fyrirtækja taka breytingum. Það er á þessu sviði sem þjónusta og fræðsla á vegum Opna háskólans nýtist vel, bæði til að auka færni einstaklinga sem skrá sig til skemmri eða lengra náms hjá Opna háskólanum, en ekki síður í þeim stjórnenda- og leiðtogalínum hannaðir eru sérstaklega fyrir tiltekna vinnustaði, í samræmi við þarfir, stöðu og áherslur hverju sinni.
Aukin færni í störfum, stjórnun og rekstri eru kjarnaviðfangsefni námskeiða hjá Opna háskólanum, auk leiðtogafærni því að baki þessum áherslum liggja ólík störf, áhugasvið og styrkleikar. Við hönnun námskeiða er lögð töluverð áhersla á blöndun aðferða þannig að þátttakendur geti hlustað og unnið sjálfstæð verkefni og komi svo til „dæmatíma“ eða í vinnustofur til leiðbeinanda með ákveðna fræðslu í farteskinu.
HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu (samskipti@ru.is). Framleiðendur hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson.