Patrekur Maron Magnússon er með BS. gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og er einn af stofnendum vefstofunnar Mojo. Í gegnum árin hefur hann fetað frumkvöðlaveginn og m.a. tekið þátt í tveimur nýsköpunarhröðlum, stofnað þrjú fyrirtæki ásamt því að taka inn styrki og fjármögnun.
Í þessu samtali ræddum við um hvernig það er að vera frumkvöðull, þátttöku í nýsköpunarhröðlum, hvernig landslagið hefur breyst með að kaupa rafmyntir, myntkaup.is sem er nýr skiptimarkaður með rafmyntir á Íslandi ásamt áhrifum Bitcoin útgáfuhelmingunarinnar (e. halving) í maí á næsta ári.
En að tilkynningum.
Í dag, þriðjudaginn 10. september hefst fyrirlestrarröð um alla anga rafmynta og bálkakeðja. Fyrirlestrarnir eru opnir öllum og munu okkar færustu sérfræðingar tala um þeirra sérhæfingu innan geirans. Ég mun opna fyrirlestraröðina í dag klukkan 15:00 í Háskólanum í sal 157 í byggingu VR-II og tala um allt það sem mér þykir spennandi og áhugavert við rafmyntir. Fyrirlestrarnir verða svo haldnir alla þriðjudaga á sama tíma til 26. nóvemer.
#8 - Titringur á heimsmörkuðum, viðskiptastríð og neikvæðir raunvextir - Agnar Tómas Möller
#7 - Rekjanleiki matvæla með bálkakeðjum - Hlynur Þór Björnsson
#6 - Rafmyntir, undirstöður peninga og þjóðargjaldmiðlar á bálkakeðjum - Sveinn Valfells
#5 - Hvað gerðist með Nokia? - Magnús Viðar Skúlason
#4 - Fjártækni ryður sér til rúms - Gunnlaugur Jónsson
#3 - Fjárfestingar í nýjum iðnaði - Jenný Ruth Hrafnsdóttir
#2 - Hvítbókin um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið - Kristrún Tinna Gunnarsdóttir
#1 - Hvað er Bitcoin? - Gísli Kristjánsson
Create your
podcast in
minutes
It is Free
The Everyday Millionaire
Pure Hustle Podcast
Making Bank
The Ramsey Show
Planet Money