Í þætti dagsins heyri ég í Snorra Steini Guðjónssyni landsliðsþjálfara í handknattleik. Við tölum um stöðu liðsins, veltum upp mögulegum mótherjum í úrslitakeppninni og ég fékk Snorra Stein til að spá hvaða lið hann vill fá í riðilinn ásamt fleiru. Kristinn Kærnested er á línunni um Bestu deildina þar sem Vestri heldur áfram að koma á óvart. Hvaða lið hafa valdið vonbrigðum? Enski boltinn og meistaradeildarbaráttan ásamt því að við spáum í spilin í Mjólkurbikarnum. Svanhvít er svo í spjalli um úrslitakeppnina í körfubolta. Þar ber hæst viðureign Stjörnunnar og Tindastóls en það varð allt vitlaust í leik liðanna í gær. Hauka og Njarðvík mætast í hreinum úrslitaleik kvenna í kvöld. Ýmislegt fleira er til umræðu. Njótið og takk fyrir að hlusta.