Allt er orðið annað hvort stjórnlaust eða sturlað. Bókun 35 við EES samninginn. Grænir flugskattar ESB til höfuðs millilandaflugi. Vextir og verðbólga. Ríkisfjármálin. Útlendingamál. „Uppfærsla“ samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og atvinnuauglýsingar helgarinnar.
Sigmundur Davíð og Bergþór fara yfir mál málanna. Helst í fréttum er að ríkisstjórnin virðist ætla sér að teppaleggja yfir gildandi innlendan rétt með rétthærri reglum frá Brussel. Enn hefur engin umræða orðið um þetta frumvarp utanríkisráðherra. Grænu flugskattarnir eru ræddir, enda hefur „diss-bréf“ forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til forsætisráðherra nú verið birt. Ákvarðanir Seðlabanka, vextir og verðbólga fá sitt pláss um leið og ríkisfjármálin, eða öllu heldur stjórnleysi þeirra, er rætt og margt fleira.
Njótið.
Hlynur bæjarfulltrúi Miðflokksins á Akureyri í léttu spjalli
Siggi Stormur spáir ágætis sumri
Þingmenn Miðflokksins
Birgir Þórarinsson, Margrét Þórarinsdóttir og Hallfríður (Didda) Hólmgrímsdóttir
Gunnar Bragi og Sigurður Páll
Ólafur Ísleifsson og Þorsteinn Sæmundsson
Karl Gauti og Jón Þór
Anna Kolbrún Árnadóttir og Vigdís Hauksdóttir
Framhaldsfundur með Sigmundi Davíð og Bergþóri.
Sigmundur Davíð og Bergþór Ólason
Create your
podcast in
minutes
It is Free