Bítið á Bylgjunni með Lilju, Simma og Ómari
Sveinn Magnússon, læknir, Rótarýfélagi og fyrrverandi skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu, ræddi við okkur um lömunarveiki.
Eyrún Magnúsdóttir, fjölmiðlakona og annar stofnandi Gímaldsins, ræddi við okkur um gervigreindarmyndbandið af kennara og nemanda í sleik.
Einar Bárðarson og María Sigrún Hilmarsdóttir fóru yfir fréttir vikunnar.
Gulli Helga var í beinni mynd- og hljóðútsendingu frá Frakklandi.
Kamilla Birta Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Partýlands, spjallaði við okkur um Hrekkjavöku.
Anna Fríða og Birna María frá Nóa Siríus mættu með dularfullt nammi.