Edda Sif Pálsdóttir hefur verið áberandi á skjám landsmanna um árabil, bæði sem íþróttafréttakona en einnig sem þáttastjórnandi í hinum geysivinsæla þætti Landanum á Rúv en hún segir frá þvi í þættinum að það hafi í raun aldrei komið annað til greina hjá henni en að starfa í fjölmiðlum þar sem hún hafi svo gott sem alist upp innan veggja þeirra.
Það er einmitt þar sem hún kynntist sínum betri helmingi, Vilhjálmi Siggeirssyni, en hann hefur starfað í sem pródúsent á íþróttadeildinni á Rúv í rúm 11 ár og má segja að hann sé maðurinn á bak við tjöldin þar á bæ. Hann breytti þó nýlega um starfsvettvang og starfar í dag sem verkefnastjóri stafrænnar kennslu í HR en er þó alltaf með annann fótinn í útsendingunum á rúv samhliða því.
Edda og Villi höfðu verið góðir vinir í mörg ár áður en samband þeirra þróaðist út í að vera “aðeins meira en bara vinir” og segja þau frá því í þættinum hvernig hlutirnir þróuðust í þá átt hjá þeim og eiga þau í dag saman tveggja ára gamlan dreng.
Í þættinum fórum við um víðan völl og ræddum meðal annars nýliðin og ansi skrýtin jól og áramót sem þau eyddu bæði í einangrun, sameiginlega ástríðu þeirra beggja sem eru íþróttir og sjónvarpsútsendingar, ferðalög innanlands og erlendis, lífið í landanum, kosti og galla við það að byrja með besta vini sínum og sögðu þau mér margar góðar sögur úr þeirra sambandstíð, þar á meðal ekki eina heldur tvær af horfnum bílum erlendis.
Njótið vel!
Laugar Spa - https://laugarspa.com/?gclid=CjwKCAiA55mPBhBOEiwANmzoQptj9RLGgQOXsWpa9IH8v4Qa5j-aTf5w9AgMtog9zd29xC7GU4oslxoCRw4QAvD_BwE
Aha.is - https://aha.is
Blush.is - https://blush.is/
Bagel 'n' Co - https://https://www.bagelnco.is/
Create your
podcast in
minutes
It is Free