Hlaðvarpsstjarnan & Hollywood sérfræðingurinn Birta Líf Ólafsdóttir kom ásamt sínum betri helmingi Gunnari Patrik Sigurðssyni í virkilega hresst og skemmtilegt spjall.
Birta Líf er annar þáttastjórnenda hlaðvarpsþáttarins vinsæla, Teboðsins, þar sem farið er vel yfir allt það helsta sem gerist í heimi hollywood stjarnanna og allt þar á milli ásamt því að mæta vikulega í heimsókn í Brennsluna á FM957 með te-vikunnar. Þá er Birta markaðsfræðingur og starfar sem markaðsráðgjafi hjá auglýsingastofunni Kiwi.
Gunnar Patrik er menntaður atvinnuflugmaður en er hann þessa stundina aftur sestur á skólabekk og í þetta skiptið var það fasteignasalinn sem heillaði.
Birta og Gunni kynntust í gegnum sameiginlega vini árið 2014 en var ákvörðun tekin um að fara á fyrsta deitið eftir að hafa hist ásamt vini sínum í bíói og mikið spjallað á snappchat í kjölfarið. Þau fóru að eigin sögn á einn óþæginlegasta og vandræðalegasta bíltúr sem sögur fara af og var Birta ekki viss um þetta ákvað þó að gefa þessu annan séns og sér svo sannarlega ekki eftir því í dag. Í dag eiga þau saman eina dóttur og er framtíðin björt.
Í þættinum fórum við um víðann völl en ræddum við meðal annars tilviljunarkenndar ákvarðanir um nám, árin í London, fjarsambandið, flugmennskuna sem ekki enþá er komið að, rómantíkina ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal stirð fyrstu kynni Gunna af tengdaföður sínum.
Bagel 'n' Co - https://https://www.bagelnco.is/
Dominos - https://www.dominos.is/
Promennt - https://www.promennt.is/is
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Augað - https://www.augad.is/
Create your
podcast in
minutes
It is Free