Fyrsti þáttur af fjórum þar sem tónlistarkonurnar Þórhildur Örvarsdóttir og Helga Kvam fara í rannsóknarleiðangur um álf- og tröllheima. Hvaða fyrirbæri eru álfar og tröll? Hvaðan komu þau? Hvað segir þjóðtrúin og fornbókmenntir okkur um þessi fyrirbæri?
Viðmælandi þáttarins er Valgerður H Bjarnadóttir.
Tónlistin í þættinum:
Álfkonuljóð (úr Rauðskinnu/Karl O Runólfsson)
Bergbúinn (H.Ibsen/Páll Ísólfsson)
Grýlukvæði (skráð af Sr Stefáni Ólafssyni í Vallanesi/íslenskt þjóðlag)
Kirkjuhvoll (Árni Thorsteinsson)
Gerð þáttanna er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra og Listsjóðnum Verðandi. Upptökur á tónlistinni fóru fram í Hömrum, Hofi, í október 2020 og upptökustjóri var Haukur Pálmason.
Create your
podcast in
minutes
It is Free