Annar þáttur af fjórum þar sem tónlistarkonurnar Þórhildur Örvarsdóttir og Helga Kvam fara í rannsóknarleiðangur um álf- og tröllheima. Viðfangsefni þáttarins er þjóðtrúin og þjóðsagnaarfurinn í dag og í den og þjóðsagan sem efniviður í samtímanum. Viðmælendur eru Björgvin Franz Gíslason leikari og Jón Jónsson þjóðfræðingur.
Tónlistin í þættinum:
Á bænum stendur stúlkan vörð (Indriði Einarsson/Árni Björnsson)
Ein sit ég úti á steini (Indriði Einarsson/Sigfús Einarsson)
Grýla og Leppalúði (Þórarinn Eldjárn/Tryggvi M. Baldvinsson)
Kirkjuhvoll (Árni Thorsteinsson)
Gerð þáttanna er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra og Listsjóðnum Verðandi. Tónlistin var tekin upp í október 2020 í Hömrum í Hofi og upptökustjóri var Haukur Pálmason .
Create your
podcast in
minutes
It is Free