308.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í þætti dagsins er komið víða við. Tippari vikunnar er enginn annar en Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi. Hann er mikill Chelsea aðdáandi og er kátur þessa dagana með sína menn. Siggi Sveins,(Sigurður Valur Sveinsson), handboltagoðsögn er á línunni og við ræðum um ófarir íslenska karlalandsliðsins í handbolta í leiknum gegn Litháen í gær. Þá er Þórhallur Dan á línunni og við ræðum um Evrópudeildina og að sjálfsögðu förum við ítarlega í PepsiMax deild karla en keppni hefst í kvöld. Við ræðum um liðin og sumarið og margt margt fleira. Njótið helgarinnar elskurnar.
Create your
podcast in
minutes
It is Free