Stjórnarskráin er æðsta réttarheimild Íslands og yfir önnur lög hafin. Grundvallarritum á ekki að breyta nema brýna nauðsyn beri til. Þeim þjóðum vegnar best sem umgangast stjórnarskrá af virðingu og vinna að breytingum af yfirvegun, þannig að sátt og almennur stuðningur sé við það sem gert er. Sviptivindar, tískusveiflur eða dægurflugur einstakra stjórnmálamanna og -flokka geta ekki orðið undirstaða breytinga á stjórnarskrá lýðfrjálsra ríkja. Stjórnarskrá leggur grunninn að ríkisstjórn laga en ekki manna.
Create your
podcast in
minutes
It is Free