Ég er sammála þeim forystumönnum verkalýðshreyfingarinnar sem halda því fram að tekjuskattskerfi einstaklinga sé ranglátt og að hvatar kerfisins séu vitlausir. Launafólki er oft refsað fyrir að bæta sinn hag. Við eigum samleið í baráttunni um að lækka skatta á venjulegt launafólk. Ég hef lagt fram ákveðnar tillögur um kerfisbreytingu, en þær eru langt í frá að vera þær einu sem gætu verið skynsamlegar. En ég á hins vegar enga samleið með þeim sem telja nauðsynlegt að láta kjarabaráttu snúast um að rýra kjör annarra.
Create your
podcast in
minutes
It is Free